Í dag fara fram þrír leikir í Bestu-deild karla. ÍBV fær Val í heimsókn á Hásteinsvöll, en sem stendur eru Valsmenn í öðru sæti deildarinnar með 26 stig og ÍBV í því ellefta og næst neðsta með 10 stig.

Leikir dagsins í Bestu-deild karla:

14:00 ÍBV-Valur (Hásteinsvöllur)
17:00 KR-KA (Meistaravellir)
19:15 Víkingur R.-Stjarnan (Víkingsvöllur)