Í dag frá klukkan 9:00 til 23:00 á að malbika Hringveg við Gaulverjabæjarveg. Hringvegi verður lokað til austur við Gaulverjabæjarveg og umferð á leið til vesturs ekur meðfram vinnusvæði.

Þeir sem eiga leið úr bænum til Landeyjahafnar eða austur aka því hjáleiðina sem er um Gaulverjabæjarveg, Önundarholtsveg og Villingaholtsveg.

Græna línan er hjáleiðin austur og sú rauða hvar malbikunin á sér stað.