Þann 14. júní samþykktu hluthafar Ísfélags Vestmannaeyja hf. sameiningu við Ramma hf. og breytingu á nafni félagsins í Ísfélag hf. Nú er rekstur félagsins á fjórum stöðum um landið; í Eyjum, á Þórshöfn, í Þorlákshöfn og á Siglufirði. „Nýja nafnið er stutt og laggott en við munum þó auðvitað tala um Ísfélagið hér eftir sem hingað til. Félagið er elsta starfandi hlutafélag landsins og með vísan til þess að starfsemin er nú á fjórum stöðum á landinu þá er nafnið heppilegt” segir Stefán Friðriksson, framkvæmdastjóri félagsins. „Ætli þeir á Þórshöfn séu ekki ánægðastir með nafnabreytinguna enda hefur verið vandræðagangur að tala um Ísfélag Vestmannaeyja á Þórshöfn” bætir Stefán við til gamans.

„Starfsmenn í sameinuðu félagi þekkja vel þær áskoranir sem fylgja því að vera með starfsemi á fleiri en einum stað. Nú standa menn frammi fyrir því að í stað tveggja starfsstöðva þá eru þær fjórar en við erum vel mönnuð á öllum stöðum og álaginu er vel dreift. Dreifð starfsemi skapar ef til vill tækifæri sem við munum geta nýtt okkur í framtíðinni” segir Stefán.

Skeifurnar halda sér

„Það er gaman að segja frá því að á tímabili hét Rammi hf. Þormóður Rammi – Sæberg hf. Rammanafnið hverfur þó ekki vegna þess að það verður okkar vörumerki fyrir tilteknar gæðavörur eins og til dæmis sjófrystan fisk af Sólberginu. Ísfélag Vestmannaeyja og Rammi eiga sér, eins og allir vita, langa og merka sögu í atvinnulífinu og það breytist ekki þó nöfnin heyri nú sögunni til. Skeifurnar verða líka áfram á sínum stað sem merki félagsins og það gleður bæði hesta og menn” segir Stefán.

„Í Þorlákshöfn hefur Rammi verið með fiskvinnslu og útgerð þar sem starfa um 50 manns. Félagið hefur dágóðar humarheimildir en veiðar á humri voru stöðvaðar 2022 og nú er veiðibann í gildi um óákveðinn tíma. Það verða einhver ár í að humarveiðar verði leyfðar aftur og vinnsla geti hafist á ný” segir Stefán en frystihúsið í Þorlákshöfn hefur því unnið bolfisk og kola. Á Siglufirði er frystitogarinn gerður út og þar er einnig öflug rækjuverksmiðja sem vinnur úr rækjuafla Múlabergs og norsku hráefni.

Loðnuvertíðin sú besta í manna minnum

„Rekstur félagsins hefur gengið vel það sem af er ári. Loðnuvertíðin í vetur var sú besta í manna minnum hvað snertir veður og veiðin var afar góð. Við fengum samtals um 64.000 tonna kvóta og þrátt fyrir að stórum hluta kvótans hafi ekki verið úthlutað fyrr en í lok febrúar þá tókst að veiða hann allan. Allt lagðist á eitt með okkur og sjómenn og starfsmenn í landi stóðu sína vakt af mikilli prýði. Frystitogarinn Sólberg hefur fiskað vel og aflabrögð bolfiskskipanna hafa verið góð. Þá hafa mjöl- og lýsismarkaðir verið í hæstu hæðum, en því er hins vegar ekki að neita að rækjuveiðar og -vinnsla hafa átt erfitt uppdráttar eins og fram hefur komið í fréttum að undanförnu” segir Stefán.

Breytingar í flotanum

Til viðbótar við skipin sem gerð hafa verið út frá Eyjum bætast við frystitogarinn Sólberg, sem vinnur að jafnaði úr um 10.000 tonnum af hráefni á ári, Jón á Hofi sem gerður er út frá Þorlákshöfn og Múlaberg sem er gert út á rækju. Í smíðum er ísfisktogarinn Sigurbjörg sem áætlað er að bætist við flotann í stað eldri skipa fyrir árslok. Sigurbjörg verður gerð út frá Þorlákshöfn og er nú í smíðum við Celiktrans skipasmíðastöðina í Istanbúl í Tyrklandi sem er sama stöð og smíðaði Sigurð VE fyrir um 9 árum. Skipið er búið öllum besta búnaði, hefur 1.795 kílóvatta aðalvél og tekur 180 tonn af fiski í lest.

Tölvugerð mynd af Sigurbjörgu.

„Ísfélagið er eitt af þeim félögum sem hefur fjöregg þjóðarinnar í höndum sér. Því fylgir mikil ábyrgð. Félagið stendur traustum fótum bæði rekstrar- og eignarlega. Sterk félög hafa fleiri og betri tækifæri til að sækja fram og auka verðmætasköpunina í greininni en þau sem veikari eru. Hér eru úrvals starfsmenn og stjórnendur, sannarlega valinn maður í hverju rúmi. Það er því engin ástæða til annars en að horfa bjartsýnn fram á veginn” segir Stefán aðpurður út í framtíðina hjá nýju Ísfélagi.