Innleiðing á nýju flokkunarkerfi mun hefjast haustið 2023 í Vestmannaeyjum þar sem fjórum úrgangsflokkum verður safnað við hvert heimili. Þetta kemur fram í frétt á v ef Vestmannaeyjabæjar. Flokkunum fylgja samræmdar merkingar FENÚR sem munu gilda fyrir alla flokkun á Íslandi, allar tunnur fá því nýjar límmiðamerkingar. Um er að ræða stórt framfaraskref í umhverfis- og loftslagsmálum. Flokkað verður í eftirfarandi flokka:

Matarleifar
Pappír og pappi
Plastumbúðir
Blandaður úrgangur

Nýja flokkunarkerfið er fjögurra flokka kerfi. Hlutverk endurvinnslu tunnunnar breytist og í hana fer aðeins pappír og pappi. Íbúar fá því nýja tunnu, merkta fyrir plast. Með því að flokka pappa og plast í sitt hvora tunnuna, næst betri flokkun en með einni tunnu þar sem flokkarnir blandast saman.