„Ég er ráðherrabílstjóri í fæðingarorlofi . Er í mastersnámi í áfallastjórnun við Háskólann á Bifröst, hliðarverkefni við að ala upp barn,“ segir Eyrún Haraldsdóttir verkefnastjóri starfakynningar sem haldin verður í Þekkingarsetrinu 16. nóvember nk. „Ég vann í fimm ár í ferðaþjónustu og þar á undan vann ég í 15 ár með unglingum, bæði í félagsmiðstöð og í Fjölsmiðjunni,“ bætir Eyrún við sem hefur starfað með  Flugbjörgunarsveit Reykjavíkur í nokkur ár. Segir mastersnámið eðlilegt framhald og nýja áskorun. Ein jólin brá hún sér í grunnbúðir Everest sem sýnir að Eyrún gerir það sem henni dettur í hug. 

 „Maður finnur sér alltaf ný verkefni og næsta skref er Starfakynningin 16. nóvember. Er það í þriðja skiptið sem kynningin er haldin í Vestmannaeyjum. Kynningin verður í Þekkingarsetrinu og húsnæði Visku. Síðast var hún árið 2018. Þá kynntu 25 fyrirtæki og stofnanir í Eyjum starfsemi sína fyrir nemendum Grunnskólans og Framhaldsskólans og öllum Eyjabúum. Hún heppnaðist mjög vel og ekki síður fyrsta kynningin sem var uppi í Framhaldsskóla.“ 

Eyrún hefur haft samband við flest fyrirtæki og stofnanir í bænum og kemur fjöldinn á óvart. „Eflaust hef ég gleymt einhverjum en þau sem ég hef haft samband við eru yfir 130. Bið ég þá sem ég ekki hafa heyrt frá mér að hafa samband því auðvitað viljum fá sem flesta. Ég hefði viljað vera búin að fá meiri viðbrögð frá þeim sem ég hef haft samband við og væri gaman að heyra frá fleirum, fyrirtækjum, einyrkjum, frumkvöðlum og stofnunum. Starfakynningin verður í einn dag. Fyrripart dags koma efri bekkir Grunnskólans og  nemendur úr Framhaldsskólanum og seinni partinn er opið fyrir almenning. Er full ástæða til að hvetja fólk til að mæta og kynna sér fjölbreytt og öflugt atvinnulíf í Vestmannaeyjum.“  

Eyrún með soninn Harald.

Persónuleg og lifandi kynning  

Tilgangurinn með starfakynningunni er stefnumót atvinnulífsins við starfsmenn framtíðarinnar, íbúa og önnur fyrirtæki. Fyrirtæki eru hvött til að vera með, með fleiri þátttakendum verður kynningin áhugaverðari og árángursríkari. Markmiðið er persónuleg og lifandi kynning á starfsgreinum og starfsemi fyrirtækja í bænum. Með áherslu á fjölbreytni þeirra og jafnframt að skapa umræðu um þróunina. Kynningin verði stefnumót ólíkra fyrirtækja sem gæti jafnvel leitt til samstarfs. Gefa nemendum skólanna tækifæri til að fræðast um atvinnulíf í Vestmannaeyjum og þróun þess og sjá hvaða tækifæri eru í boði í heimabyggð. 

„Setrið hentar einstaklega vel fyrir kynningu eins og þessa. Flott staðsetning en um leið getur fólk fræðst um að það sem er að gerast í húsinu. Nóg pláss á tveimur hæðum og fyrir mig er þetta mjög spennandi. Það eru 20 ár síðan ég flutti héðan og gaman að sjá að í Vestmannaeyjum er allt til alls og meira til. Mikil uppbygging,“ sagði Eyrún sem hvetur þá sem ekki fengu póst að hafa samband, hægt er að senda póst á [email protected]. „Eins ef fólk er með einhverjar spurningar, endilega hafið samband og vonandi verður fullt hús. Þetta er tækifæri til að sýna hvað hægt er að gera í Vestmannaeyjum.“

Myndir frá Starfakynningunni í Setrinu 2018.