Handknattleiksdeild ÍBV skorar á Handknattleikssambandi Íslands þar sem gerðar er athugasemdir við leikjaálag meistaraflokks kvenna. Liðið á fjóra leiki á átta dögum og þar af tvo Evrópuleiki með tilheyrandi ferðalögum.

Tilkynninguna frá ÍBV má lesa í heild sinni hér að neðan.

ÍBV Íþróttafélag -handknattleiksdeild hefur sýnt þann metnað að taka þátt í Evrópukeppni þegar að meistaraflokkar félagsins hafa áunnið sér slíkan rétt. Teljum við slíka þátttöku handknattleik á Íslandi til framdráttar og án efa eru flest félög okkur sammála um það.

Nú kemur það hins vegar í bakið á okkur að sýna slíkan metnað. ÍBV á tvo leiki í Evrópukeppni á nk. laugardag og sunnudag þann 11. og 12. nóv. Liðið flýgur út á fimmtudeginum 9. nóv. og kemur síðan til baka til Eyja á miðvikudaginn 15. nóv. og á samkvæmt áætlun að leika á fimmtudeginum þar á eftir.

Samkvæmt áætlun á kvennalið ÍBV einnig að leika gegn Haukum áður en farið er út í Evrópukeppnina. ÍBV hefur óskað eftir því að sá leikur frestist þar til eftir áramót. HSÍ og Knattspyrnufélagið Haukar hafa neitað því að verða við þessari beiðni ÍBV og ætlast til þess að ÍBV leiki gegn Haukum á þriðjudag/miðvikudag áður en farið er í flug til Madeira. Flug til Madeira eru tveir leggir hvora leið.

Staðan er því þannig núna að ætlast er til þess af HSÍ að kvennalið ÍBV leiki 4 leiki á 8 dögum og þar af 2 evrópuleiki ásamt því að fljúga fjórar flugferðir á þessum 8 dögum.

Við hjá ÍBV Íþróttafélagi – handknattleiksdeild teljum þetta skipulag ekki ganga. Þau rök frá HSÍ að ÍBV hafi sjálft valið sér að taka þátt í Evrópukeppni eru að okkar mati dapurleg skilaboð til þeirra liða sem vilja hag íþróttarinnar sem bestan og metnaðarfyllstan. Þá hlýtur það að teljast stórt spurningamerki hvort slíkt álag á leikmenn sé réttlætanlegt og HSÍ getur ekki skorast undan að leggja mat á það. Karlalið Vals var í svipaðri stöðu í fyrra og þá voru leikir þeirra færðir til að því að við best vitum. Gildir annað um kvennalið íþróttarinnar.

Við skorum á að hafa velferð og heilsu leikmanna í öndvegi og ekki að tefla á tvær hættur og taka óþarfa áhættu þegar að lausnir eru í boði.

Ábyrgð HSÍ er mikil ef upp koma alvarleg meiðsli

Ég tek undir áhyggjur forráðamanna ÍBV af fyrirhuguðu leikjaplani meistaraflokks kvenna ÍBV í handknattleik næstu vikuna. Mikil umræða hefur verið um álag íþróttafólks og sérstaklega kvenkyns íþróttamanna með tilliti til meiðslahættu undanfarin ár. Að ætla sér að spila 4 keppnisleiki á innan við viku á hæsta stigi íþróttarinnar er að mínu mati út í hött, svo vægt sé til orða tekið. Þar að auki er framundan ferðalag milli landa til að spila evrópuleiki, og rannsóknir sýna að ferðalög auka einnig áhættu á meiðslum íþróttamanna.

Ég hef því miklar áhyggjur af liðinu og hvernig það mun koma út úr leikjatörn sem þessari. Ábyrgð HSÍ er mikil ef upp koma alvarleg meiðsli í hópnum. Hagsmunir leikmanna eiga alltaf að vera í forgangi þegar teknar eru ákvarðanir um skipulag og álag. Ég skora því á HSÍ að endurskoða ákvörðun um leikjaskipulag næstu daga og taka tillit til athugasemda ÍBV.

Virðingarfyllst,
Davíð Egilsson,
Sérfræðingur í heimilislækningum,
Yfirlæknir heilsugæslunni í Vestmannaeyjum.
Læknir ÍBV knattspyrnu og handknattleiksdeilda.
Læknir U-21 árs landsliðs íslands í knattspyrnu