Foreldramorgnar Landakirkju standa fyrir söfnun fyrir jólin í samvinnu við Bókasafn Vestmannaeyja.

“Nú er tíminn til að versla aukagjöf undir tréð svo að öll börn geti átt gleðileg jól. Athugið að merkja gjöfina með aldri barns og kyn/kynhlutlaust. Athugið að setja heilan varning í gjafirnar. Við hvetjum sérstaklega fyrirtæki í Eyjum til að taka þátt,” segir í tilkynningu frá skipuleggjendum.

Söfnunin hefst mánudaginn 27.nóvember og stendur út laugardaginn 16.desember. Prestar Landakirkju útdeila gjöfunum í jólavikunni.