Þóranna Halldórsdóttir tók við sem formaður unglingaráðs á dögunum af Ingibjörgu Jónsdóttur. Þetta kemur fram í frétt á vef ÍBV.

Þóranna lék knattspyrnu með félaginu á sínum yngri árum og á nokkra mfl. leiki að baki ásamt því að hafa þjálfað hjá félaginu. Hún á 4 börn sem stunda æfingar í hand- og/eða fótbolta og þekkir því vel til yngri flokka starfsins.

“Um leið og við bjóðum Þórönnu velkomna þá viljum við þakka Ingibjörgu fyrir gott og óeigingjarnt starf í þágu félagsins,” segir í tilkynningu frá ÍBV.