SASS óskar eftir tilnefningum til Menntaverðlauna Suðurlands 2023.

Allir þeir sem tengjast skóla- og/eða menntunarstarfi með einhverjum hætti, s.s. sveitarfélög, skólanefndir, kennarar, starfsfólk skóla og annað áhugafólk um menntun og skólastarf, hafa rétt til þess að tilnefna til verðlaunanna. Tilnefningunni verður að fylgja ítarlegur rökstuðningur.

Tilnefningar skulu berast til Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, Austurvegi 56, Selfossi, fyrir miðnætti sunnudaginn 4. febrúar nk. Tilnefningar berist á netfangið [email protected]

Verðlaunin verða nú veitt í 16. sinn. Veitt verða peningarverðlaun sem nýtast til áframhaldandi menntunarstarfs, sem og formleg viðurkenning. Verðlaunin verða afhent við formlega athöfn í tengslum við hátíðarfund Vísinda- og rannsóknarsjóðs Suðurlands 15. febrúar nk.