Þriggja flokka kerfi hefur verið við heimili í Vestmannaeyjum síðan 2011. Í ár munu við innleiða fjögra flokka kerfi þar sem eina breytingin við heimilin er að aðskilja þarf pappa og plast í sér tunnur. Skylda er að vera með ílát fyrir fjóra flokka við öll heimili. Íbúar hafa möguleika á að hafa áhrif á fjölda og stærð íláta miðað við þjónustustig sem hentar fyrir heimilið.

Málm og gler þarf að losa á grenndarstöðvar eða á móttökustöð upp á hrauni. Tvær nýjar grenndarstöðvar verða settar upp. Ein á Tangagötu vestan við Krónuna og önnur í botnlanga milli Eyjahrauns 1 og Eyjahrauns 3. Þetta verður auglýst betur síðar.

Leita á til Vestmannaeyjabæjar þegar endurnýja og viðhalda þarf sorpílátin. Íbúar bera ábyrgð á að hreinsa ílátin.

Nýjum tvískiptum tunnum verður keyrt út þegar viðeigandi sorpbíll kemur til Eyja.

Þessi þáttur í sorpmálum er inn í fasteignagjöldunum.

Móttökustöð – Sorpusvæði

Vestmannaeyjabær hefur borgað með móttöku á gjaldskyldum úrgangi skv. gjaldskrá. Þessi kostnaður hefur hlaupið á tugum milljóna ár hvert. Þetta er greitt með útsvari íbúa í Vestmannaeyjum í stað þess að sá sem hendir þurfi að borga fyrir það. Skv. lögum hefur Vestmannaeyjabær ekki heimild til að greiða með þessu lengur og því þarf að rukka alla sem koma á flokkunarsvæðið á móttökustöðinni og henda sorpi skv. gjaldskrá.

Ekki er rukkað fyrir losun á endurvinnanlegum efnum eins og t.d. pappa, plasti, raftækjum, hjólbörðum og málmi.

Kostnaður vegna móttökusvæðis er ekki inn í þeim gjöldum sem innheimt eru með fasteignagjöldum heldur hafa verið greidd sérstaklega af útsvarstekjum.

Gjöld – kostnaður

Sorphirða og sorpförgun frá heimilum verður rukkað eins og áður með fasteignagjöldum. Fyrir árið 2023 var það samanlagt rúmar 69 þús. kr. og fyrir árið 2024 verður það 71. þús. kr.

Vestmannaeyjabær hefur ekki verið að rukka íbúa þegar þeir fara á móttökustöð við Eldfellsveg heldur hefur verið að greiða með móttökustöðinni og nam kostnaðurinn við það fyrir árið 2023 um 93 milljónir króna. Skv. lögum er það ekki lengur heimilt og er það þannig að þeir borga sem henda sem tekur það gildi frá og með 1. febrúar.

Sorpútboð er áætlað í lok janúar. Endurskoða þarf gjaldskrá móttökustöðvar í kjölfar útboðs enda endurspeglar gjaldskrá raunkostnað við móttöku, förgun og flutning sorps.