Fyrirspurnir til Vestmannaeyjabæjar 2023 voru til umræðu á fundi bæjarráðs í vikunni sem leið. Fjöldi formlegra fyrirspurna til Vestmannaeyjabæjar er varðar hin ýmsu mál sveitarfélagsins og félags í eigu þess var 348 á árinu 2023 og bárust þær frá einum einstaklingi. Sá tími sem fór í svara fyrirspurnunum jafngildir u.þ.b. hálfu stöðugildi starfsmanns allt árið.