Eftir erfiðan vetur í Landeyjahöfn hefur farið fram ítarleg skoðun á því hvernig mögulegt er að efla afköst og árangur dýpkunar í höfninni. Þetta kemur fram í frétt á vef vegagerðarinnar. Sú skoðun hefur leitt í ljós að skipið Álfsnes hentar vel til dýpkunar við þær aðstæður sem eru uppi í Landeyjahöfn en áætlun um aukna nýtingu hefur einnig verið sett fram, áætlun sem gæti aukið afköst um allt að 50 prósent.

Vinna undir stjórn erlends sérfræðings hefur leitt fram leiðir til úrbóta við nýtingu skipsins og á grundvelli hennar hefur verið sett fram áætlun um breytingar á skipinu og verklagi á dælingu í Landeyjahöfn til að auka afköst hefur verið unnin sem felur í sér að afköstin gætu aukist umtalsvert með dýpkunarskipinu Álfsnesi. Björgun ehf. hefur unnið áætlunina með vísan til skýrslu sem hollenskur ráðgjafi í dýpkunarframkvæmdum Ruud Van Maastrict vann.

Eftir útboð var samið við Björgun ehf. um dýpkun í Landeyjahöfn. Vegagerðin hefur gert athugasemdir við að afköst Álfsnessins séu ekki nægileg og ekki í takt við kröfur í útboðinu. Samningurinn var til þriggja ára og er því eitt ár eftir af samningnum. Í stað uppsagnar samningsins sem kom til greina leggur Björgun fram áætlun um hvernig auka megi afköstin verulega.

Aðgerðaráætlunin er í fjórum liðum þar sem tekið er á mönnun og þjálfun, smærri breytingum, umfangsmeiri breytingum og eftirfylgni við þessar breytingar næsta vetur þegar á reynir.

Í skýrslu Ruud Van Maastrict kemur fram að með núverandi búnaði Álsnes megi skila í dýpkun 12-14 þúsund rúmmetrum á sólahring, sem er 50 prósentum meira en afköstin hafa verið. Þessi afköst eru í takt við það sem reynslan hefur verið nú í seinni hluta aprílmánaðar.

Þessu má ná fram með mönnun og þjálfum starfsmanna. Stytta má snúningstíma skips og hraða losun og nýta skipið þannig mun betur. Ráðinn verður sérstakur útgerðarstjóri til að fylgja því eftir að ávalt sé unnið á hámarksafköstum. Gerðar verða nú þegar smærri breytingar á búnaði og á næstunni frekari breytingar til að auka afköstin, snýr það fyrst og fremst að dælubúnaði.