Ríkisstyrkt Eyjaflug hefst í vetur

Bæjarráð Vestmannaeyja átti fund með Svandísi Svavarsdóttur, innviðaráðherra þann 23. maí sl. Þar voru samgöngumál Vestmannaeyja meðal þeirra mála sem rædd voru. Staðfesti ráðherra að ríkisstyrkt flug hefjist á milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja í vetur til þriggja ára. Þá ræddi bæjarráð drög að skýrslu vinnuhóps sem ætlað er að leggja mat á fýsileika gangna milli […]
Fær bætur vegna handtöku á Þjóðhátíð

Ríkislögmaður hefur fallist á að greiða tvítugum manni 150 þúsund krónur í bætur vegna handtöku á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í fyrra. Maðurinn, sem er dökkur á hörund taldi að húðlitur hans hefði skipt máli við handtökuna, segir í frétt á fréttavef RÚV. Þar segir ennfremur að ríkislögmaður hafni því alfarið í bréfi til lögmanns mannsins […]
Tæplega helmingur drengja ólæs

Um 47% drengja getur ekki lesið sér til gagns samkvæmt PISA mælingum 2022 við útskrift úr 10. bekk og þriðjungur nær ekki grunnviðmiðum í stærðfræði og náttúruvísindum. Einungis þriðjungur nýnema í háskóla eru drengir, eitt mesta brottfall drengja úr framhaldsskólum í Evrópu er á Íslandi, stór hluti þeirra upplifir lítinn tilgang með námi sínu og […]
Vill byggja parhús í Dverghamri

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja tók fyrir á fundi sínum í byrjun vikunnar umsókn um byggingarleyfi á Dverghamri 27-29. Fram kemur í fundargerð ráðsins að borist hafi umsókn frá lóðarhafa Dverghamri 27-29. Þar sækir Gísli Ingi Gunnarsson f.h. Fundur Fasteignafélag ehf. um byggingarleyfi fyrir parhúsi, í samræmi við framlögð gögn. Umsókninni var vísað til umsagnar skipulagsráðs […]
Sjómannsfrúr kröftugustu konurnar
Eyjafréttir ræddu við nokkrar sjómannskonur og er Kristín Hartmannsdóttir ein þeirra. Atvinna? Er gæða- og verkefnastjóri hjá Laxey. Fjölskylda? Guðni , Edda Björk og Hólmfríður Eldey . Hversu lengi hefur þú verið sjómannsfrú? Guðni var á sjó á sumrin þegar hann var í Vélskólanum. Svo fór hann aðeins í kælibransann þegar við bjuggum í Reykjavík. Þegar við komum […]