Ottó N. Þorláksson dreginn til hafnar eftir vélarbilun

Togarinn Ottó N. Þorláksson frá Vestmannaeyjum varð vélarvana undan Siglufirði í kvöld og var björgunarskipið Sigurvin kallað út á mesta forgang til að koma skipinu til aðstoðar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg. Rétt fyrir klukkan 19 bárust stjórnstöð Landhelgisgæslunnar boð frá áhöfn Ottós um að skipið væri aflvana og hættulega nálægt landi. […]
Bergey með blandaðan afla

Ísfisktogarinn Bergey VE landaði fullfermi í heimahöfn í Vestmannaeyjum mánudaginn 22. júní og aftur í gær. Rætt er stuttlega við Jón Valgeirsson skipstjóra á vefsíðu Síldarvinnslunnar og er hann spurður um veiðarnar. „Við lönduðum fullfermi mánudaginn 22. júní en héldum síðan ekki til veiða á ný fyrr en á fimmtudag. Síðan lönduðum við fullfermi á […]
Sigurjón Þórðarson og sannleikurinn

Alþingismaðurinn Sigurjón Þórðarson skrifar grein á vísi.is þar sem hann hefur áhyggjur af áhrifum aðildar að Evrópusambandinu á íslenskan sjávarútveg og sérstaklega sjávarbyggðir. Ég er honum sammála um að líklega verði afleiðingarnar miklar og neikvæðar, ekki bara fyrir sjávarbyggðir, heldur landið allt þegar til lengdar lætur. Aðal ástæða þess að við erum sammála er, eins […]
Nýr áfangi í rannsóknum Eyjaganga að hefjast

Hafsbotnsmælingar vegna fyrirhugaðra Eyjaganga hefjast í þessari viku þegar sjómælingaskipið Baldur kemur til Vestmannaeyja. Mælingarnar eru mikilvægur liður í áframhaldandi rannsóknum á mögulegri vegtengingu milli lands og Eyja. Í meðfylgjandi myndbandsviðtali ræðir Halldór B. Halldórsson við Harald Pálsson, framkvæmdastjóra Eyjaganga, um rannsóknirnar og tilgang þeirra. Haraldur útskýrir hvernig hljóðendurvarpsmælingar fara fram, hvaða upplýsingum þær eiga […]