Nýr áfangi í rannsóknum Eyjaganga að hefjast
Tveir Baldrar mættir til Eyja. Í forgrunni er sjómælingabáturinn Baldur Landhelgisgæslunnar sem mun sinna hafsbotnsmælingum vegna rannsókna Eyjaganga. Í bakgrunni sést Breiðafjarðarferjan Baldur sem hefur undanfarnar vikur annast hluta af áætlunarsiglingum milli lands og Eyja samhliða Herjólfi. Ljósmynd: Halldór B. Halldórsson.

Hafsbotnsmælingar vegna fyrirhugaðra Eyjaganga hefjast í þessari viku þegar sjómælingaskipið Baldur kemur til Vestmannaeyja. Mælingarnar eru mikilvægur liður í áframhaldandi rannsóknum á mögulegri vegtengingu milli lands og Eyja.

Í meðfylgjandi myndbandsviðtali ræðir Halldór B. Halldórsson við Harald Pálsson, framkvæmdastjóra Eyjaganga, um rannsóknirnar og tilgang þeirra. Haraldur útskýrir hvernig hljóðendurvarpsmælingar fara fram, hvaða upplýsingum þær eiga að skila og hvernig þær nýtast við áframhaldandi fýsileikamat verkefnisins.

Sjómælingaskipið Baldur, sem er í eigu Landhelgisgæslu Íslands, mun sinna mælingunum í samstarfi við Íslenskar orkurannsóknir (ÍSOR) og erlenda sérfræðinga á næstu tveimur vikum.

Play Video

Nýjustu fréttir

Lögregla hættir rannsókn á andlátsmálinu á Hraunbúðum
Lóðaumsókn fyrir hvítu tjöldin hafin
Herjólfur kominn í viðgerðarstopp
Eyjakonur töpuðu gegn Þór/KA á Akureyri
ÍBV og KA skildu jöfn á Hásteinsvelli
Laxey boðar til samráðs- og upplýsingafundar
Djamm Original heldur í hefðirnar  – Frá Bridgerton í aldamótastuð
Tvöfaldur leikdagur hjá ÍBV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.