Ottó N. Þorláksson dreginn til hafnar eftir vélarbilun
Björgunarskipið Sigurvin kom togaranum til aðstoðar þegar hann rak hættulega nærri landi
Sigurvin dregur Ottó N Þorláksson
Lega ofhitnaði um borð í Ottó N. Þorlákssyni VE-5 og varð skipið aflvana í kjölfarið. Sigurvin dró hann til hafnar á Siglufirði. Ljósmynd/Landsbjörg

Togarinn Ottó N. Þorláksson frá Vestmannaeyjum varð vélarvana undan Siglufirði í kvöld og var björgunarskipið Sigurvin kallað út á mesta forgang til að koma skipinu til aðstoðar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg.

Rétt fyrir klukkan 19 bárust stjórnstöð Landhelgisgæslunnar boð frá áhöfn Ottós um að skipið væri aflvana og hættulega nálægt landi. Samkvæmt tilkynningunni hafði lega ofhitnað og mikill reykur myndast, en enginn eldur kom upp.

Þegar útkallið barst var togarinn kominn í um eina sjómílu frá landi. Átta manna áhöfn hans brást þegar við með því að varpa akkeri og toghlerum til að draga úr reki skipsins. Áhöfn Sigurvins hélt úr höfn um fimmtán mínútum eftir að útkallið barst og var komin að Ottó um klukkan 19:30. Taug var komið á milli skipanna og hófst þá tog inn Siglufjörð.

Þrátt fyrir að Sigurvin sé aðeins um 15 metrar að lengd dró hann hinn rúmlega 50 metra langa og um 800 brúttótonna togara örugglega til hafnar. Þegar tilkynningin var send út voru skipin komin inn á Siglufjörð og verið var að koma Ottó N. Þorlákssyni að bryggju.

Nýjustu fréttir

Vilja vernda einstakt lífríki sunnan Íslands
Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna
Brottför seinni ferðar flýtt vegna versnandi veðurs
Níu útgefendur fá styrki til fjölmiðlunar í héraði
Óveðrið í myndum
Uppvakningafaraldur skellur á Íslandi í nýju hlaðvarpi úr Eyjum
Þakplata farin að losna – hviður náðu 51 m/s á Stórhöfða
Skólahaldi seinkað til klukkan 9 vegna veðurs
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.