Reyktur lax frá Laxey til styrktar ÍBV handbolta

Vegna mikillar eftirspurnar ætlar handknattleiksdeild ÍBV að bjóða aftur til sölu reyktan lax frá Laxey. „Samloka eða brauðterta með reyktum laxi í hvíta tjaldinu – þurfum við að segja eitthvað meira?“ segir í tilkynningu deildarinnar. Laxinn kostar 6.000 krónur kílóið og fer salan fram í krónni hjá Sigurjóni Ingvars og félögum á Skipasandi á morgun, […]
Sunnudagsmorgunn með alþjóðlegum blæ

Það var óvenju mikið líf í Vestmannaeyjabæ snemma í morgun þegar farþegar tveggja skemmtiferðaskipa tóku að streyma í land. Á níunda tímanum var þegar hafin ferjun farþega frá skipunum, sem lágu í Klettsvík annars vegar og hitt var rétt fyrir utan klettsnefið. Þaðan héldu ferðamenn ýmist fótgangandi af stað til að kynna sér bæinn eða […]
Um 8000 farþegar með tíu skemmtiferðaskipum

„Þessa vikuna komu til Vestmannaeyjahafnar tíu skemmtiferðaskip með samtals um 8.000 farþega,“ segir í færslu á Facebook-síðu Vestmannaeyjahafnar. Í gær voru tvö skemmtiferðaskip í höfn í Eyjum. „Mikil vinna fylgir svona viku, bæði fyrir starfsmenn hafnarinnar og ferðaþjónustuna, og er ekki hægt annað en að hrósa öllum sem komu að þessu,“ segir í færslunni. Starfsmenn hafnarinnar […]