Reyktur lax frá Laxey til styrktar ÍBV handbolta
Reyktur lax frá Laxey verður til sölu hjá handknattleiksdeild ÍBV á Skipasandi á morgun. Með kaupunum styrkja viðskiptavinir starf deildarinnar.

Vegna mikillar eftirspurnar ætlar handknattleiksdeild ÍBV að bjóða aftur til sölu reyktan lax frá Laxey.

„Samloka eða brauðterta með reyktum laxi í hvíta tjaldinu – þurfum við að segja eitthvað meira?“ segir í tilkynningu deildarinnar.

Laxinn kostar 6.000 krónur kílóið og fer salan fram í krónni hjá Sigurjóni Ingvars og félögum á Skipasandi á morgun, mánudaginn 27. júlí, frá klukkan 15.00 til 18.00.

Einnig verður til sölu saltfiskur upp á gamla mátann. Hér gefst því gott tækifæri til að næla sér í hágæðavöru og styrkja handknattleiksdeild ÍBV um leið.

Áfram ÍBV – alltaf, alls staðar!

Nýjustu fréttir

Metmæting á kótilettukvöldi í Höllinni
Aron Lucas Vokes með slitið krossband
Agnar Smári Jónsson með stórsýningu er hann sneri aftur á völlinn í Eyjum í dag
Sandra tryggði ÍBV sigur í blálokin gegn Fram
Bleikur leikur hjá Eyjakonum – allur aðgangseyrir til Krabbavarnar
Gul viðvörun á Suðurlandi – hviður geta farið yfir 30 m/s
Arnór maður leiksins í sigri Karlskrona
Sálmastund með þér
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.