Um 8000 farþegar með tíu skemmtiferðaskipum
Annasöm vika að baki í Vestmannaeyjahöfn – Tvö skemmtiferðaskip voru í höfn í gær
Lúxusleiðangursskipið Seabourn Venture við Nausthamarsbryggju í gær. Myndin er tekin ofan af Heimakletti. Mynd: Tói Vídó/Facebook-síða Vestmannaeyjahafnar.

„Þessa vikuna komu til Vestmannaeyjahafnar tíu skemmtiferðaskip með samtals um 8.000 farþega,“ segir í færslu á Facebook-síðu Vestmannaeyjahafnar. Í gær voru tvö skemmtiferðaskip í höfn í Eyjum. „Mikil vinna fylgir svona viku, bæði fyrir starfsmenn hafnarinnar og ferðaþjónustuna, og er ekki hægt annað en að hrósa öllum sem komu að þessu,“ segir í færslunni.

Starfsmenn hafnarinnar fóru um borð í þrjú skipanna og afhentu áhöfnum þeirra viðurkenningarplatta fyrir hönd Vestmannaeyjahafnar. Hefð þegar skip koma í fyrsta skipti til Eyja. Veðrið lék við heimamenn og gesti í gær og sólin setti skemmtilegan svip á annasaman dag í höfninni. „Við, eins og allir aðrir, fögnuðum sólinni mjög í dag og fengum Tóa Vídó til að taka fyrir okkur myndir. Fleiri myndir og myndbönd verða birt á næstu dögum,“ segir enn fremur í færslu Vestmannaeyjahafnar.

Meðal skipa í höfn í gær var lúxusleiðangursskipið Seabourn Venture, sem lá við Nausthamarsbryggju.

 

Nýjustu fréttir

Páll aftur á Sprengisandi – Beint í djúpu laugina
Framtíðarsýn um réttlæti og stöðugleika
Fótboltamaðurinn Bjarki Björn Gunnarsson er íþróttamaður mánaðarins
Veðurblíðan í Eyjum í sumar á sér fáar hliðstæður
Fjölbreytt námskeið hjá Visku í haust
Myndlistargyðjan var alltaf í fyrsta sæti
Vestmannaeyjar Open 2026 í pílukasti fór fram um helgina
ÍBV tapaði á heimavelli gegn ÍA
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.