Það var óvenju mikið líf í Vestmannaeyjabæ snemma í morgun þegar farþegar tveggja skemmtiferðaskipa tóku að streyma í land.
Á níunda tímanum var þegar hafin ferjun farþega frá skipunum, sem lágu í Klettsvík annars vegar og hitt var rétt fyrir utan klettsnefið. Þaðan héldu ferðamenn ýmist fótgangandi af stað til að kynna sér bæinn eða komu sér fyrir í hópferðabílum til að skoða helstu náttúruperlur Heimaeyjar.
Á tíunda tímanum iðaði miðbærinn af lífi, sem verður að teljast fremur óvenjuleg sjón svo snemma á sunnudagsmorgni. Ferðamenn voru víða á gangi um bæinn og aðrir nýttu tækifærið til að gæða sér á kaffi og bakkelsi í bakaríum bæjarins.
Veðrið lék við gesti og heimamenn og innsiglingin skartaði sínu fegursta. Óskar Pétur Friðriksson var á ferðinni í morgun og myndaði skipin tvö.