Ný almannavarnalögn gjörbreytir öryggi Vestmannaeyja

    Þegar ný vatnslögn milli Landeyjasands og Vestmannaeyja verður tekin í notkun síðar á árinu verða tímamót í öryggi samfélagsins. Þá verða Vestmannaeyjar með tvær sjálfstæðar vatnsleiðslur frá landi og þar með varaleið ef önnur þeirra bilar. Lagning leiðslunnar hófst í vikunni og á miðvikudagskvöld tókst að koma enda hennar í land á Landeyjasandi […]

Makrílvertíðin að hefjast

Makrílvertíðin er að hefjast og hjá Ísfélaginu leggja uppsjávarskipin Heimaey og Sigurður úr höfn í kvöld til veiða. Þótt makrílkvótinn sé ekki stór bíða umfangsmikil verkefni í haust með veiðum á norsk-íslenskri síld, íslenskri síld og vonandi loðnu. Hjá Vinnslustöðinni verður hins vegar ekki farið á makrílveiðar í ár vegna framkvæmda í uppsjávarvinnslunni, en þar […]

Friðrik hleypur fyrir Guðbjörgu Sillu

Hlauparinn Friðrik Benediktsson tekst á við sannkallað þrekvirki næstkomandi laugardag þegar hann tekur þátt í Race Across Scotland 215 mílna utanvegahlaup þvert yfir Skotland. Friðrik hleypur fyrir Guðbjörgu Sillu Viðarsdóttur og rennur allur ágóði áheitasöfnunarinnar til hennar og fjölskyldu hennar.  Hlaupastyrkur Minningarsjóðs Gunnars Karls Haraldssonar er í ár tileinkaður Guðbjörgu Sillu, 17 ára Eyjastelpu sem […]

Sara Björk heldur á vit nýrra ævintýra á Akureyri 

Útskrift 10. bekkinga markar tímamót í lífi margra ungmenna. Við fengum að heyra í nokkrum útskriftarnemum úr Grunnskóla Vestmannaeyja sem líta til baka á grunnskólaárin og segja frá því sem stendur upp úr, auk þess sem þau segja frá því sem tekur við í haust. Sara Björk Bjarnadóttir er ein þeirra nemenda sem kvaddi Grunnskóla […]

Aflaheimildir til strandveiða auknar um 964 tonn

Innviðaráðherra hefur á ný aukið aflaheimildir til strandveiða á yfirstandandi strandveiðitímabili með breytingu á reglugerð um ráðstöfun afla sem dreginn er frá heildarafla. Með breytingunni er aflamark þorsks til strandveiða aukið um 964 tonn, úr 13.350 tonnum í 14.314 tonn. Með þessu nemur heildarafli sem úthlutað verður til strandveiða upp úr sjó 15.664 tonnum árið 2026. Þetta […]

Endi nýju vatnsleiðslunnar kominn í land

Mikilvægum áfanga í lagningu nýrrar vatnsleiðslu milli lands og Vestmannaeyja var náð í kvöld þegar endi leiðslunnar var dreginn upp í fjöru á Landeyjasandi eftir að sterkur straumur hafði tafið verkið. Mikill straumur tafði framkvæmdina í gær en um klukkan tíu í kvöld tókst að koma enda nýju vatnsleiðslunnar milli Vestmannaeyja og lands upp í […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.