Endi nýju vatnsleiðslunnar kominn í land
Skipverjar á Þór höfðu snör handtök á lokasprtettinum. Mynd Óskar Pétur.

Mikilvægum áfanga í lagningu nýrrar vatnsleiðslu milli lands og Vestmannaeyja var náð í kvöld þegar endi leiðslunnar var dreginn upp í fjöru á Landeyjasandi eftir að sterkur straumur hafði tafið verkið.

Mikill straumur tafði framkvæmdina í gær en um klukkan tíu í kvöld tókst að koma enda nýju vatnsleiðslunnar milli Vestmannaeyja og lands upp í fjöru á Landeyjasandi.

Lagning hófst í fyrrakvöld þegar lagningarskipið Seven Navica lét úr höfn í Vestmannaeyjum. Björgunarbáturinn Þór fylgdi skipinu en hlutverk áhafnarinnar var að koma enda leiðslunnar í land. Sterkur straumur kom í veg fyrir að það tækist í gær en tafði ekki sjálfa lagninguna. Seven Navica hélt áfram að leggja lögnina á meðan hún flaut á belgjum.

Landtakan var vel undirbúin. Þór var með 500 metra dráttarlínu úr landi. Þegar straumurinn lægði við fallaskiptin var endi leiðslunnar tengdur við línuna og jarðýta dró hana upp í fjöruna á Landeyjasandi.

Veður var með besta móti, sléttur sjór og góðar aðstæður til verksins. Straumurinn reyndist því eina verulega hindrunin. Nýja vatnslögnin er 12,7 kílómetra löng og mun stórbæta vatnsöryggi Vestmannaeyja. Nú er aðeins ein af þremur eldri vatnslögnum milli lands og Eyja í nothæfu ástandi en hinar tvær eru orðnar ónýtar.

 

Leiðslan dregin að landi. Mynd Óskar Pétur.

Nýjustu fréttir

Myndband: Athafnasvæðin austur á Heimaey úr lofti
Jóhann Ingi tekur sæti Sæunnar til áramóta
Vaxandi lestur og fleiri áskrifendur hjá Eyjafréttum
Tölum um heilabilun – fræðsla í Vestmannaeyjum
Starfshópur mótar nýja ferjuáætlun
Haustið farið af stað hjá Fimleikafélaginu Rán
Ægisgata 2 sett aftur á sölu
Milena fer á æfingamót í Portúgal með u-17 ára landsliðinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.