Friðrik hleypur fyrir Guðbjörgu Sillu
Friðrik Benediktsson.

Hlauparinn Friðrik Benediktsson tekst á við sannkallað þrekvirki næstkomandi laugardag þegar hann tekur þátt í Race Across Scotland 215 mílna utanvegahlaup þvert yfir Skotland. Friðrik hleypur fyrir Guðbjörgu Sillu Viðarsdóttur og rennur allur ágóði áheitasöfnunarinnar til hennar og fjölskyldu hennar. 

Hlaupastyrkur Minningarsjóðs Gunnars Karls Haraldssonar er í ár tileinkaður Guðbjörgu Sillu, 17 ára Eyjastelpu sem greindist á síðasta ári með sjaldgæft afbrigði af taugahrörnunarsjúkdómnum MND (ALS). Hún er yngsti einstaklingurinn á Íslandi sem hefur greinst með sjúkdóminn og sú eina sem hefur greinst með þetta sjaldgæfa afbrigði hans.

Race Across Scotland er 215 mílur, eða um 346 kílómetrar, sem samsvarar rúmlega átta maraþonum. Hlaupið liggur frá Portpatrick á vesturströnd Skotlands til Cockburnspath á austurströndinni. Leiðin fylgir Southern Upland Way um fjöll, dali, skóga og afskekkt heiðarlönd.

Í Facebook-færslu Friðriks segir:

,,Allur ágóði af áheitasöfnuninni rennur til Guðbjargar Sillu og fjölskyldu hennar. Með stuðningi okkar getum við hjálpað Guðbjörgu Sillu að takast á við áskoranir framtíðarinnar, aukið möguleika hennar á að lifa eins sjálfstæðu og innihaldsríku lífi og kostur er og skapað fleiri dýrmætar stundir með ástvinum sínum”.

Friðrik hvetur alla sem hafa tök á að heita á hann. Hann bendir á að engin upphæð sé of lítil og hvert framlag skipti máli. 

Hægt er að leggja söfnuninni lið með því að smella hér.

Nýjustu fréttir

Ásmundur les úr Sögum af Vellinum á Safnahelgi
Hrekkjavökuballið í Alþýðuhúsinu – myndir
Einstæð móðir vann rúmar 45 milljónir í Lottó
Bókakynningu Steinunnar frestað til sunnudags
Kæru vegna útboðs heilsuræktar hafnað – skilmálarnir ekki metnir efnislega
Loðnan ofarlega á baugi hjá kaupendum í Asíu
Arnar tilkynnti lokahóp Íslands – Þrjár Eyjakonur á leið á EM
Jarðvinna og húsbyggingar í Eyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.