Íslandsmót golfklúbba í 2. deild karla hefst í Eyjum á morgun

Íslandsmót golfklúbba í 2. deild karla hefst í Vestmannaeyjum á morgun, sunnudag og stendur út þriðjudag. Átta klúbbar leika um sæti í efstu deild að ári. Keppt er í tveimur riðlum og komast tvö efstu liðin úr hvorum riðli í undanúrslit. Hér að neðan er hægt að sjá klúbbana sem taka þátt. 1. Golfklúbbur Setbergs […]

Minna á lokanir við Viðlagafjöru

Mynd/Laxey

Aukin umferð hefur verið um starfssvæði Laxey við Viðlagafjöru undanfarin kvöld. Talið er að umferðin tengist pysjutímabilinu sem nú er gengið í garð í Vestmannaeyjum. Í tilkynningu frá fyrirtækinu er minnt á að mikil uppbygging stendur yfir á svæðinu og því sé um framkvæmdasvæði að ræða sem ekki er opið almenningi. Af öryggisástæðum verður hliðinu […]

Landtaka NSL-4 gekk samkvæmt áætlun

Landtöku nýju almannavarnarlagnarinnar NSL-4 í Skansfjöru lauk rétt rúmlega klukkan sex í morgun. Aðgerðin gekk mjög vel og var að fullu í samræmi við fyrirliggjandi skipulag og hönnun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bæjaryfirvöldum. Um klukkan hálffjögur í nótt var síðara endastykki lagnarinnar komið frá borði útlagningarskipsins Seven Navica. Skipið var þar með laust […]

Útlagningu NSL-4 lauk í nótt

Lokið var við að leggja nýju vatnslögnina NSL-4 yfir innsiglinguna til Vestmannaeyja í nótt og endi hennar tekinn á land. Óskar Pétur Friðriksson, ljósmyndari Eyjafrétta, fylgdist með lokakafla framkvæmdarinnar og tók meðfylgjandi myndir. Blíðskaparveður var í Eyjum og góðar aðstæður þegar útlagningarskipið Seven Navica lauk við að leggja síðustu metra lagnarinnar. Að verkinu loknu hélt […]

Vestmannaeyjar eru hluti af því hver maður er

„Ég held að staða Vestmannaeyja sé gríðarlega sterk í dag og að allt sem við höfum sjálf í okkar höndum sé í mjög góðu lagi, þótt alltaf megi gera betur“, segir Páll Magnússon, fjölmiðlamaður, fyrrum alþingismaður og fráfarandi forseti bæjarstjórnar Vestmannaeyja, spurður um stöðu Eyjanna. Hann segir þó að samgöngurnar kalli á stöðug og mikil […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.