Minna á lokanir við Viðlagafjöru
Mynd/Laxey
Athafnasvæði Laxeyjar í Viðlagafjöru. Ljósmynd: Aðsend.

Aukin umferð hefur verið um starfssvæði Laxey við Viðlagafjöru undanfarin kvöld. Talið er að umferðin tengist pysjutímabilinu sem nú er gengið í garð í Vestmannaeyjum.

Í tilkynningu frá fyrirtækinu er minnt á að mikil uppbygging stendur yfir á svæðinu og því sé um framkvæmdasvæði að ræða sem ekki er opið almenningi. Af öryggisástæðum verður hliðinu inn á svæðið lokað að kvöld- og næturlagi.

Fólk er hvatt til að virða lokanir og þær öryggisreglur sem gilda á svæðinu. Jafnframt kemur fram að starfsfólk Laxey muni að sjálfsögðu koma þeim pysjum til bjargar sem kunna að villast inn á starfssvæðið.

Laxey óskar pysjuleitendum góðrar og öruggrar leitar, segir í lok tilkynningarinnar. Pysjutímabilið er nú komið vel af stað en samkvæmt upplýsingum á lundi.is hefur 91 pysja verið skráð það sem af er tímabilinu.

Nýjustu fréttir

Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.