Útlagningu NSL-4 lauk í nótt
Lokakafli útlagningar NSL-4 lagður í nótt. Seven Navica sést skammt frá landi þegar unnið var að því að koma enda nýju vatnslagnarinnar á land. Skipið hélt frá Eyjum að verkinu loknu. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar Pétur Friðriksson.

Lokið var við að leggja nýju vatnslögnina NSL-4 yfir innsiglinguna til Vestmannaeyja í nótt og endi hennar tekinn á land. Óskar Pétur Friðriksson, ljósmyndari Eyjafrétta, fylgdist með lokakafla framkvæmdarinnar og tók meðfylgjandi myndir.

Blíðskaparveður var í Eyjum og góðar aðstæður þegar útlagningarskipið Seven Navica lauk við að leggja síðustu metra lagnarinnar. Að verkinu loknu hélt Seven Navica frá Vestmannaeyjum eftir að endi lagnarinnar hafði verið tekinn á land.

Eins og áður hefur komið fram var ákveðið að ljúka útlagningunni þrátt fyrir að Vestmannaeyjabær telji að um altjón á lögninni sé að ræða eftir atvik sem varð aðfaranótt sunnudagsins 9. ágúst. Lögnin er þó órofin og er vonast til að hægt verði að nýta hana að einhverju marki. Enn er óvíst hvort hún verði nýtanleg og gæti þurft að leggja aðra almannavarnarlögn í hennar stað.

Halldór B. Halldórsson fylgdist einnig með framkvæmdunum dagana 13. og 14. ágúst og má sjá myndband hans hér að neðan.

Play Video

Nýjustu fréttir

Dreymir um að verða lögreglumaður
Þarf kjark til að fara á karlaráðstefnu?
Hákon hlakkar mest til að læra sund
Trúfesti Guðs rauði þráðurinn í 100 ára sögu
Binni Þór gerir tveggja ára samning við ÍBV
Mikill spenningur fyrir komandi tímabili
Gætu sparað hundruð milljóna ef grjótið reynist vel
Viljayfirlýsing undirrituð um samstarf vegna Eyjaganga
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.