Landtaka NSL-4 gekk samkvæmt áætlun
Frá aðgerðum næturinnar. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

Landtöku nýju almannavarnarlagnarinnar NSL-4 í Skansfjöru lauk rétt rúmlega klukkan sex í morgun. Aðgerðin gekk mjög vel og var að fullu í samræmi við fyrirliggjandi skipulag og hönnun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bæjaryfirvöldum.

Um klukkan hálffjögur í nótt var síðara endastykki lagnarinnar komið frá borði útlagningarskipsins Seven Navica. Skipið var þar með laust og sigldi frá Klettsvík. Lögninni var í kjölfarið fleytt yfir í Skansfjöru þar sem landtakan hófst.

Næstu skref eru að sanda yfir lögnina og loka skurðinum sem hún liggur í. Þá verður hún tengd svo hægt verði að hefja þrýstiprófun. Tjón varð á NSL-4 við útlagningu aðfaranótt sunnudagsins 9. ágúst. Ákveðið var að ljúka verkinu til að lágmarka frekara tjón allra aðila.

Nú er beðið eftir formlegri lokaskýrslu um atvikið. Forsvarsmenn Vestmannaeyjabæjar segjast ekki munu tjá sig frekar um tjónið eða veita nánari upplýsingar fyrr en sú skýrsla liggur fyrir.

Nýjustu fréttir

Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.