Kvenfélagið Heimaey - Vígsla bekkja við Hranbúðir

Í dag laugardaginn 10. júní 2023 klukkan ca. 11:35 verður vígsla fyrstu gönguleiðar “Brúkum bekki”. Vígslan verður við upphaf göngustígs sunnan við Hamarskóla, Hraunbúðarmegin.

„Að brúka bekki“ er samfélagsverkefni sem Félag sjúkraþjálfara til að hvetja til aukinnar hreyfingar.  Verkefnið felur í sér að setja upp 1 km gönguleiðir sem henta eldri borgurum og öðrum sem lakir eru til gangs.  Á gönguleiðunum eru bekkir á um 250 metra millibili sem er hægt að hvíla sig.

Fyrsta gönguleiðin er frá Hraunbúðum, um göngustíg sunnnan við Hamarskóla, uppá Spyrnubraut of aftur niðureftir. Önnur gönguleið er fyrirhuguð á miðbæjarsvæði bæjarins.

Ólöf Aðalheiður Elíasdóttir og Anna Hulda Ingadóttir ásamt Félag sjúkraþjálfara og Vestmannaeyjabæ sáu til þess að þetta verkefni kæmi líka til eyja. Kvennfélagið Heimaey gefur fyrstu 5 bekkina til verkefnisins til Vestmannaeyjabæjar í tilefni að 50 ára afmæli kvennfélagsins.

 

Kortið sýnir leiðina.

Nýjustu fréttir

Hermundur hugmyndasmiður Kveikjum neistann 
99 á atvinnuleysisskrá í Eyjum – árstíðasveiflur skýra haustaukningu
Ómetanlegt að sjá heilt samfélag taka höndum saman
Radarhýsið komið á sinn stað á Stórhöfða
Fjölbreytt fjögurra daga menningarveisla
Vikan í Eyjum: Fjármál bæjarins, brons og besta lundasumarið
„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.