Fullfermi landað eftir 36 tíma
Mynd/ Arnar Berg Arnarsson

Ísfisktogarinn Vestmannaey VE hélt til veiða aðfaranótt 2. janúar. Skipið hélt rakleiðis á Víkina og landaði síðan fullfermi í Eyjum 36 tímum síðar eða eftir hádegi á miðvikudag. Hér er um að ræða fyrstu löndun skips í Síldarvinnslusamstæðunni á árinu 2024. Afli Vestmannaeyjar var mest þorskur, ýsa og ufsi og var um ákaflega fallegan fisk að ræða.

Bergur VE hélt til veiða á miðvikudag og Vestmannaey sigldi á miðin strax að löndun lokinni eftir því sem fram kemur á vef Síldarvinnslunnar.

Nýjustu fréttir

Áfram Noregur í kvöld – Heimisáhrifin virka
Draumurinn orðinn að veruleika
Einstakt safn Magnúsar vakti forvitni á Goslokahátíð
Þrjár vikur í Þjóðhátíð – uppbyggingin hafin í Herjólfsdal
Sumarlesturinn hefur aldrei farið betur af stað
Áform um þrjú ný einbýlishús við Reglubraut
Evrópusambandið, meira en tollabandalag
50 ár frá opnun sundlaugar Vestmannaeyja
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.