Björgun að standa sig? – Fleiri flugferðir
Herjólfur

„Siglingar Herjólfs til Landeyjahafnar hafa verið afar stopular frá því í október og þá fyrst og fremst vegna dýpis við hafnarmynni og í höfninni sjálfri. Þá hefur þurft að sigla til hafnarinnar á háflóði þegar önnur skilyrði eru til staðar. Öllum er ljóst að höfnin er ekki sú heilsárshöfn sem lofað var á sínum tíma. Það er því nauðsynlegt að rannsóknir verði kláraðar og höfnin verði löguð þannig að hún þjóni sínu hlutverki allt árið um kring. Þolinmæði bæjarbúa gagnvart sjósamgöngum í vetur er á þrotum,“ segir í fundargerð bæjarráðs þann 9. janúar.

Fram kemur að bæjarráð telur stöðuna óásættanlega í samgöngumálum við Vestmannaeyjar. Algjört ráðaleysi af hálfu ríkisins sé við að tryggja að Landeyjarhöfn sé heilsárshöfn. „Bæjarstjóra er falið að óska eftir upplýsingum frá Vegagerðinni um það hvort og hvernig Björgun sé að standa við skilyrði útboðs vegna dýpkunar í ljósi þess hve illa hefur gengið að dýpka höfnina undanfarna mánuði.

Bæjarráð skorar á þingmenn kjördæmisins og aðra sem valdið hafa að tryggja að löngu tímabærar endurbætur verða gerðar á höfninni og felur bæjarstjóra og koma niðurstöðu ráðsins á framfæri við þá sem málið varðar.

Þá ítrekar bæjarráð þá kröfu um að flugferðum milli lands og Eyja verði fjölgað verulega á meðan höfnin virkar ekki sem skildi,“ segir í fundargerð. Innviðaráðherra og vegamálastjóri hafa orðið við ósk bæjarstjóra um að mæta á íbúafund til Eyja 30. janúar til að fara yfir þá stöðu sem uppi er og þær lausnir og framkvæmdir sem eigandi hafnarinnar sér fyrir sér á komandi árum.

Nýjustu fréttir

Fleiri sóttu um iðnnám en komust að í haust
Myndband sýnir varhugaverðar aðstæður við Ofanleitishamar
Styrkleikarnir snúa aftur í einfaldara formi
Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega við Ofanleitishamar
ESB setur hagsmuni Íslands ekki í fyrsta sæti
Leitað að nýju hundasvæði
Suðurland á mikið undir
Íslenskir diplómatar binda ekki Evrópudómstólinn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.