Vestmannaeyjabær og Vinnslustöðin hf. hafa komist að samkomulagi um þátttöku í forvali vegna útboðs á rekstri ferju, sem sigla á milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar (við Bakkafjöru).
Aðilar eru sammála um að sú breyting sem felst í tíðum og öruggum 30 mínútna ferðum milli Vestmannaeyja og hafnar í Landeyjum beri með sér mikil sóknarfæri fyrir Vestmannaeyjar, bæði íbúa og atvinnulíf.
Þá er það einnig sannfæring beggja aðila að viðskiptaleg tækifæri kunni að felast í eignarhaldi og rekstri ferjunnar og því sé mikilvægt fyrir heimamenn að kanna af fullri alvöru forsendur reksturs og eignarhalds á ferjunni með þátttöku í forvali fyrir útboð.
Þekking og reynsla þessara samstarfsaðila á skiparekstri, þjónustu og umsýslu er mikil. Innrigerð og uppbygging Vestmannaeyjabæjar er sérhæfð til að veita almenningsþjónustu. Þá var Vestmannaeyjabær einn aðal eigandi og rekstraraðili hlutafélagsins Herjólfs hf. frá árinu 1976 til 2001 sem sinnti siglingum milli Vestmannaeyja og Þorlákshafnar. Vinnslustöðin hf. er stærsta fyrirtækið í Vestmannaeyjum og eitt af stærstu sjávarútvegsfyrirtækjum landsins. Vinnslustöðin er umsvifamikil í útgerð og landvinnslu og starfrækir bæði fiskvinnsluhús og fiskimjölsframleiðslu í Eyjum. Fyrirtækið gerir út 8 skip og báta. Þekking starfsmanna á sviði skipareksturs er því yfirgripsmikil. Þá er þekking Vinnslustöðvarinnar á íslensku sem erlendu viðskiptalífi mikil. Innrigerð Vinnslustöðvarinnar er ekki hvað síst sérhæfð til skipareksturs og hefur fyrirtækið á sínum snærum skipaverkfræðinga, vélfræðinga, skipstjórnendur og allt annað er snýr að þjónustu við skipaflota fyrirtækisins og rekstur hans.
Til frekari fróðleiks:
Þáttaka í forvalinu fela ekki í sér aðrar skuldbindingar er þær að eiga möguleika á þáttöku í útboðinu sjálfu.
Enn sem komið er hefur ekki verið unnið tilboð í rekstur og smíði Herjólfs, einungis er um forval að ræða fyrir útboðið.
Tilboð í rekstur og smíði ferjunnar verður unnið ef Vestmannaeyjabær og VSV verða valdir til þáttöku í útboðinu sjálfu .
3 – 5 aðilar verða valdir til að senda inn tilboð í rekstur og smíði Herjólfs.
VSV og Vestmannaeyjabær ætla sér ekki að reka Herjólf, heldur verður stofnað sérstakt félag um reksturinn.
Það félag mun síðar bjóða í rekstur og smíði Herjólfs
Ekkert hefur verið ákveðið um eignarhald á hinu nýja félagi, en vafalaust verður fleiri aðilum boðið til samstarfs og þá sérstaklega horft til aðila innanbæjar.
Eftir 3 – 5 mánuði verður ákveðið hvaða tilboði verður tekið og þá hefst raunveruleikinn og hvort VSV og Vestmannaeyjbær verða aðilar að þeim raunveruleika verður bara að koma í ljós á síðari stigum.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.