Tvílembum nú með Huginn VE.

Jæja þá erum við byrjaðir að tvílemba með strákunum á Huginn VE. Við græjuðum okkur í nótt og köstuðum svo um sjö í morgun. Sverrir Rúnars fór yfir um borð í Huginn til að sýna strákunum handbrögðin enda hafa þeir aldrei partrollað áður.

Allt þetta gekk fínt og erum við með trollið okkar úti núna og ætlum við að skipta þeim afla sem við fáum okkar á milli. Það er ekkert að mokast inn í trollið en það var lítið að sjá fyrst í morgun. Þetta er eitthvað að glæðast núna en svona er ástandið búið að vera hér við Jan Mayen. Það er búið að vera mikið betri veiði hjá þeim sem eru að partrola heldur en hjá þeim sem eru einir. Síldin er öll í yfirborðinu og er þetta eina almennilega leiðin til að ná einhverju af henni.
  Við erum núna um 30 sml. sunnan við Jan Mayen og sést vel í eldfjallið á eynni. Það heitir Beerenberg og skagar  2277 metra yfir sjávarmál. Veðrið er að leika við okkur þessa stundina og er sól og blíða. Það er líka ágætt að fá svona gott veður á meðan verið er að slípa til strákana á Huginn.
  Ég setti inn myndband sem ég tók þegar strákarnir á Huginn skiluðu Sverri til okkar eftir að búið var að kasta. Er í “myndbönd”.

http://www.123.is/tobbivilla/

 

Nýjustu fréttir

Ófært til lands – uppfært
Gyllta flóran keppir fyrir hönd Féló
Bíða enn eftir alvöru vertíðarstemmningu
Ferðaþjónustan er öflug atvinnugrein sem þarf tryggar samgöngur
Gul viðvörun á Suðurlandi: Búist við þrumuveðri
Evrópudagur talþjálfunar er í dag
Forsala á Þjóðhátíð 2026 hafin
Hitastig sjávar að vetri aldrei verið hærra
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.