ÍBV hafði betur í úrslitaleik 1. deildar kvenna í dag en stelpurnar léku gegn Þrótti í úrslitaleik á Þorlákshafnarvelli. Markalaust var í hálfleik en ÍBV tókst að skora þrívegis í síðari hálfleik á meðan Þrótti tókst aðeins að svara einu sinni. Bæði lið leika í úrvalsdeild næsta sumar.