Hermann Hreiðarsson er á sínum stað í A-landsliðshópnum sem var tilkynntur í dag. Íslenska liðið mætir Kýpverjum ytra þann 26. mars næstkomandi en Hermann hefur verið að spila vel með liði sínu, Portsmouth í ensku 1. deildinni. Annar Eyjamaður, Þórarinn Ingi Valdimarsson var einnig valinn í U-21 árs landsliðið en liðið leikur gegn Úkraínu ytra 24. mars.