Réttlæti getur verið svolítið afstætt hugtak. Það hefur t.d. verið tilkynnt, skera þurfi niður framlög í jöfnunarsjóð sveitarfélaga um milljarð, þar sem greiða þurfi niður skuldir eins sveitarfélags á höfuðborgarsvæðinu. Sveitarstjórn í því sveitarfélagi fór í heimskulega stórveldisdrauma, byggði og framkvæmdi án þess að nokkur glóra væri í þeim. Og nú þurfa sveitarfélögin á landsbyggðinni að greiða fyrir þessar glórulausu framkvæmdir á fyrrverandi helsta þenslusvæði landsins. Á meðan þessir gríðarlegu fjármunir verða notaðir til að borga m.a. lúxussundlaug á höfuðborgarsvæðinu, er verið að skera niður margskonar nauðsynjaþjónustu víða út um land eins og t.d. heilbrigðisþjónustu. – Já, réttlæti fyrir suma, kann að vera óréttlæti fyrir aðra.