Gunnar Kr. Gunnarsson, framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja, vildi lítið tjá sig um greinargerðina og benti á þetta væru tillögur til ráðherra en ekki hans tillögur. „Ég átti samtal við ráðherra í gær [þriðjudag] og skildist mér á honum að þessar sameiningartillögur væru ekki á döfinni á allra næstu dögum. Eftir að Suðurland var sett í eitt heilbrigðisumdæmi þá hafa Árnes-, Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýsla fallið undir Heilbrigðisstofnun Suðurlands. Það hefur verið stefnan í hverju umdæmi að sameina allar heilbrigðisstofnanir innan umdæmisins.“