Í kvöld verður Eyjakvöld á Kaffi Kró en Eyjakvöldin hafa sannarlega slegið í gegn hjá Eyjamönnum, og fleirum. Tónlistarmenn úr Eyjum í hljómsveitinni Obbosí, ásamt nokkrum aukamönnum, koma þá saman og syngja Eyjalögin vinsælu. Snilldin í þessari uppákomu felst einnig í því að textunum er varpað upp á tjald þannig að allir geta sungið með.