Yfirleitt logn á Stórhöfða að undanförnu
Þeir sem leggja við hlustir þegar útvarpað er frá Veðurstofu Íslands kl. 10.10 á morgnana, hafa tekið eftir því að nú að undanförnu hefur yfirleitt verið logn á Stórhöfða. – Ekki þar fyrir að oft er jú logn á Stórhöfða , – en þegar rokhvasst er í Vestmannaeyjabæ, en logn á Stórhöfða, – er eitthvað skrítið að gerast. Óskar Sigurðsson í Stórhöfðavitanum, þar sem veðrið er tekið, sagði að á þessu væri einföld skýring: Sjálfvirki vindmælirinn er bilaður og hefur verið lengi, hann sendi því þau skilaboð til Veðurstofunnar að logn sé á Stórhöfða.

Nýjustu fréttir

Hvalasöngur og tónlist í sundlauginni á Safnahelgi
Fleiri skólar gætu tekið upp Kveikjum neistann 
Safnahelgin sett í Stafkirkjunni í dag
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Eyjamenn geta aukið forskotið á Víking í kvöld
„Mig langar eiginlega bara að verða söngvari“
Sigurður Arnar kveður ÍBV og semur við Val
Trúnaður má ekki verða skjól fyrir þögn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.