Hjallastefnan velkomin til Eyja,......en?
Stýrihópur vegna útboðs á rekstri leikskólans Sóla og fræðslu- og menningarráð Vestmannaeyjabæjar hafa mælt með því að tilboði Hjallastefnunar í rekstur leikskólans verði tekið. Það er gott og blessað. Það tilboð var lægst og kannski eðlilegt að því skuli tekið. En fleira hangir á spýtunni. Hvar verður yfirstjórn leikskólans og þá væntanlega hæstu launin greidd. Útsvar af þeim launum, sem stjórna verður væntanlega ekki greitt til Vestmannaeyjabæjar. – Við hvaða birgja verður verslað. Verða það birgjar í Vestmannaeyjum eða eru öll innkaup allra Hjallastefnuleikskólanna hjá sama birgja, sem ekki eru í Vestmannnaeyjum. Ég þekki það úr mínum eigin rekstri; þegar Húsey varð að Húsasmiðjunni, Tanginn varð að Kaupfélagi Árnesinga og síðar Kaupási, og þegar Herjólfur hf. varð Samskip og síðar Eimskip. Þá fundu birgjar í Vestmannaeyjum fyrir miklum breytingum, – viðskipti þessara aðila við þá hurfu að mestu.

Nýjustu fréttir

Hvalasöngur og tónlist í sundlauginni á Safnahelgi
Fleiri skólar gætu tekið upp Kveikjum neistann 
Safnahelgin sett í Stafkirkjunni í dag
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Eyjamenn geta aukið forskotið á Víking í kvöld
„Mig langar eiginlega bara að verða söngvari“
Sigurður Arnar kveður ÍBV og semur við Val
Trúnaður má ekki verða skjól fyrir þögn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.