Atvik á áhorfendapöllunum í leik ÍBV og Stjörnunnar setti frekar ljótan svip á annars ágætan leik. Stuðningsmenn Stjörnunnar höfðu, samkvæmt heimildum Eyjafrétta, látið illa, sungið miður fallega söngva sem beindust að markahróknum Tryggva Guðmundssyni. Þá var einn þeirra með veiðistöng og bjórflösku bundna á endann og sagðist ætla að veiða Tryggva.