Frá því að ég fór að taka virkan þátt í stjórnmálum fyrir um tveimur áratugum hefur verið harkalega tekist á um stjórnkerfi fiskveiða. Enda miklir hagsmunir undir og himinn og haf á milli sjónarmiða. Sumir telja núverandi kerfi gott með óheftu framsali og leigu heimilda. Þær byggðir sem standa sig safna heimildum. Aðrar verða undir. Aðrir vilja fyrna heimildir og leigja aftur út þannig að eignarhald á auðlindinni sé tryggt og opnað fyrir nýliðun.