Karla- og kvennalið ÍBV í handbolta léku bæði í dag en strákarnir tóku á móti Fjölni á meðan stelpurnar sóttu Hauka heim. Strákarnir áttu ekki í vandræðum með Fjölni og unnu tuttugu marka sigur, 40:20 en staðan í hálfleik var 16:11. ÍBV er sem fyrr í efsta sæti 1. deildar, með tveggja stiga forystu á Víking og Stjörnuna þegar fimm umferðum er ólokið.