Tryggvi Guðmundsson, leikmaður Fylkis, mætir sínum gömlu félögum í ÍBV í Pepsi-deildinni klukkan 17:00 í dag. Tryggvi var fyrir helgi í leit að fari í Landeyjarhöfn til að komast til Eyja fyrir leikinn í dag en á endanum fékk hann far með fyrrum liðsfélaga sínum Þórarni Inga Valdimarssyni.