Vegna bilunar í spenni í tengivirki Landsnets í Rimakoti á Landeyjasandi varð straumlaust á hluta Suðurlands rétt fyrir klukkan 20 í gærkvöldi. Rafmagn komst fljótlega á aftur og dísilvélar voru ræstar í Vestmannaeyjum og í Vík.
�?ar er rafmagn hjá almennum notendum en skerða hefur þurft afhendingu rafmagns til notenda sem eru á skerðanlegum flutningssamningum í Eyjum. �?etta kemur fram í tilkynningu á vefsíðu Landsnets.
�?ar segir að verið sé að meta ástand spennisins í Rimakoti og eiga niðurstöður þeirrar athugunar að liggja fyrir seinna í dag. �??Eins og staðan er nú virðist sem bilunin sé alvarleg og spennirinn þurfi að fara í frekari viðgerð. �?ví er viðbúið að skerðingar verði áfram í gildi til notenda í Eyjum á skerðanlegum flutningi,�?? segir í tilkynningu Landsnets.