Mikið um loðnu austur af Íslandi
Norsku loðnuskipin fundu mikið magn af loðnu austur af Íslandi í gærkvöldi áður en óveðrið skall á, að því er fram kemur á vef norska síldarsamlagsins. Skipið Liafjord fékk til dæmis 900 tonn í tveimur köstum og er nú á leið til Noregs með aflann.
Sex skip fengu afla í gærkvöldi um 45 til 50 mílur austur af Seyðisfirði. Áður höfuð nokkur skip veitt loðnu norður af landinu. Alls hafa norsku skipin tilkynnt um 3.400 tonna loðnuafla við Ísland. Um 43 stykki voru í kílóinu fyrir austan en loðnan var aðeins smærri fyrir norðan, eða um 47 stykki í kílóinu.
Eftirspurn eftir loðnu til manneldis er mikil bæði frá norskum og íslenskum kaupendum, segir á vef norska síldarsamlagsins.
Fiskifréttir.is greindi frá.

Nýjustu fréttir

Óvenjulegar eignfærslur og tafir á afhendingu gagna
Opið hús hjá Krabbavörn
Fermingar á næsta leyti
Bent kemur fram á Hljómey!
Skyndihjálparnámskeið hjá Visku um helgina
Útför: Einar Birgir Sigurjónsson
Elís Þór æfði með A-landsliðinu
Treysti sér ekki til að vera heima og horfa á leikinn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.