Stjörnukonur höfðu betur gegn ÍBV, 0:1 á Hásteinsvelli í leik sem er nýlokið. Leikurinn var í fjórðu umferð Pepsídeildarinnar og er ÍBV í sjöunda sæti með þrjú stig en Stjarnan situr á toppi deildarinnar með tíu stig.
Ekkert mark var skorða í fyrri hálfleik en aðeins um tíu mínútur voru liðnar af þeim seinni þegar Stjarnan náði að skora. Eftir það voru Stjörnukonur mun sprækari og var það ekki fyrr en á síðustu tíu til fimmtán mínútunum sem Eyjakonur náðu sér á strik. Náðu þær að að skapa sér nokkur færi þar sem Cloe Lacasse fór fremst í flokki. �?að dugði þó ekki til og niðustaðan var þriðji tapleikurinn á tímabilinu. Allir hafa þeir tapast 1:0.