Skuldir félagsins lækkað um 130 milljónir á fjórum árum
Okkur fannst kjörið að heyra í formanni ÍBV íþróttafélags þar sem nú stendur fyrir dyrum aðalfundur félagsins fyrir rekstrarárið 2016. Staða félagsins hefur gjörbreyst til batnaðar á undanförnum fjórum árum. Umfang félagsins hefur aukist og fjárhagsstaðan stórbatnað. Íris Róbertsdóttir hefur verið í stjórn ÍBV Íþróttafélags í fjögur ár og sem formaður síðustu tvö árin. Auk hennar eru í aðalstjórn Aníta �?ðinsdóttir, Guðmundur Ásgeirsson, Páll Magnússon, Stefán Jónsson, Unnur Sigmarsdóttir, Unnar Hólm �?lafsson og svo fulltrúar deilda þeir Karl Haraldsson og Haraldur Bergvinsson.
�?egar Íris lítur yfir þessi fjögur ár í stjórn og tvö ár sem formaður segist hún vera nokkuð sátt. �??�?að er í mörg horn að líta hjá jafn kröftugu félagi og ÍBV þar sem sumt ratar í fjölmiðla og annað ekki. Fyrir utan allt hefðbundna íþróttastarfið þá stendur félagið fyrir fjórum af fimm stærstu viðburðum sem haldnir eru hér í Eyjum á hverju ári. Starfsmenn og sjálfboðaliðar félagsins búa yfir mikilli reynslu og þekkingu hvað varðar stjórnun og utanumhald á þessum viðburðum því ekkert af þessu gerist af sjálfu sér, enda eru starfsmenn og sjálfboðaliðar félagsins ómetanlegur fjársjóður.”
Fjárhagsleg endurskipulagning
Fjárhagsstaða félagsins hefur oft verið vinsælt umræðuefni í bænum, hvernig er staðan á félaginu í dag? �??�?egar ég ásamt fleirum komum inn í stjórnina fyrir 4 árum var fjárhagsstaða félagsins mjög erfið; skuldirnar voru tæpar 170 milljónir króna og félagið ekki rekstrarhæft. Í dag er staðan allt önnur enda var markvisst farið í endurskoðun á öllum þáttum í rekstri félagsins. Nú er starfandi sérstök fjárhagsnefnd hjá félaginu sem var hluti af þeirri fjárhagslegu endurskipulagningu sem ráðist var í 2014. Við þá endurskipulagningu var leitað til Vestmannaeyjabæjar, Vinnslustöðvarinnar og Ísfélagsins og Íslandsbanka sem kom inn á seinni stigum. Samkomulag við þessa aðila gerði félaginu kleift að semja við lánardrottna og endurskipuleggja fjárhaginn. Skrifað var undir þriggja ára samning við þessa aðila í mars 2014 sem er núna að renna út. �?að er gaman að segja frá því að nú er verið að funda með þessum aðilum og staðfesta árangurinn. Stjórn félagsins hefur ákveðið að fjárhagsnefndin verði áfram hluti af skipulagi félagins enda hefur þetta fyrirkomulag sannað gildi sitt. Farið var ofan í allan rekstur félagsins á þessum árum með því að taka upp samninga við styrktaraðila og endurskoða alla útgjaldaliði með það í huga hvar væri hægt að hagræða. Ein af forsendum þess að þetta gekk upp hjá okkur hefur verið mjög góð afkoma af síðustu �?jóðhátíðum, en hún hefur skilað félaginu því rekstrarfé sem það þarf.�??
Gjörbreytt staða
Hver er staða félagsins þá í dag? �??Staðan er allt önnur í dag en þrátt fyrir það þarf alltaf að vera vakandi yfir rekstrinum. Félagið veltir yfir 500 miljónum á ári og velta félagsins hefur tvöfaldast frá árinu 2009. Skuldir félagsins í dag eru um 40 milljónir og hafa því lækkað um 130 milljónir á síðustu fjórum árum. Rekstur íþróttafélags verður alltaf erfiður og eru okkar góðu styrktaraðilar forsenda þess að þetta gengur upp ásamt því að þjóðhátíðin haldi áfram að skila sínu. Við erum með að jafnaði 43 stöðugildi hjá félaginu og um 60 á launaskrá í hverjum mánuði. �?að er því óhætt að segja að þetta sé eitt af stærstu fyrirtækjunum í Vestmannaeyjum.�??
Viðkvæm umræða
Stundum kemur upp neikvæð umræða í tengslum við félagið. Er erfitt að fást við það? �??�?að er óhjákvæmilegt að stundum komi eitthvað uppá í jafn umfangsmikilli starfsemi og ÍBV stendur fyrir. Segja má að svo gott sem allir bæjarbúar séu í nánast daglegri snertingu við félagið með einhverjum hætti; ef ekki beint sjálfir þá í gegnum börn eða barnabörn eða vini og ættingja. Starfsemin spannar líka knattspyrnumót með þúsundum gesta, þrettándann og síðan okkar einstöku þjóðhátíð. Félagið hefur lagt gríðarlega áherslu á það síðustu árin að vanda vel til verka; bregðast hratt og faglega við vandamálum sem koma upp. Kalla til færustu utanaðkomandi fagaðila og sérfræðinga þegar svo ber undir; leggja eyrun við rökstuddri gagnrýni og bregðast við henni. Okkur er fullljóst að það má alltaf gera betur á öllum sviðum og það kappkostum við að gera á hverjum degi.”
Bíómynd tekin á Orkumóti!
”Félagið er fyrst og fremst íþróttafélag og verkefnin eru fjölbreytt. ÍBV gegnir auðvitað stóru hlutverki í samfélaginu þar sem hjá okkur æfa t.d. um 50% nemenda í Grunnskóla Vestmannaeyja. Bæjarbúar hafa alltaf haft ákveðnar skoðanir á félaginu sínu og er það eðlilegt þar sem félagið er okkar allra. Við sem erum í forsvari fyrir félagið vitum að það er alltaf hægt að gera betur þó svo að við teljum að við séum á réttri leið með félagið okkar. �?að hafa allir skoðun á ÍBV og við viljum hafa það þannig, félagið er okkar stolt og eitt sterkasta og þekktasta vörumerki Vestmannaeyja.
Starfsmenn félagsins eru um þessar mundir að leggja lokahönd á undirbúning fyrir sumarið og t.d. hófst undirbúningur �?jóðhátíðar í október og undirbúningur fótboltamótanna í lok síðast árs. Nú í sumar á að fara að gera bíómynd um Orkumótið hjá okkur eftir bókinni Víti í Vestmannaeyjum og gert er ráð fyrir að hún verði frumsýnd vorið 2018. �?að er því óhætt að segja að það sé alltaf nóg að gerast hjá félaginu.”

Nýjustu fréttir

Hjalti læknir og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Stormur á Stórhöfða
Sterkt samfélag byggir á trausti og samvinnu
Mikilvægasta skipið
Tilnefnt í faghóp vegna nýs leikskóla í Löngulág
Ábending frá Herjólfi
Appelsínugular viðvaranir gefnar út
Brýn þörf á úrbótum í Landeyjahöfn – tillögur væntanlegar í vor
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.