Við þurfum að hafa hugrekki til þess að horfa fram á við
30. júlí, 2018
Berglind Sigmarsdóttir Formaður ferðamálasamtaka Vestmannaeyja

Sagt er að það sé mikilvægt að hafa ekki öll eggin sín í sömu körfu og á meðan störfum hefur fækkað í sjávarútvegi þá fjölgar störfum hratt í ferðaþjónustu hér í Eyjum. Eyjamenn hafa því á undanförnum árum fengið sístækkandi körfu með nýjum eggjum. Unga kynslóðin sem áður vann í fiski starfar nú í ferðaþjónustu. Sjávarútvegsbærinn er núna líka ferðamannabær og hefur það fært Eyjamönnum margt gott, atvinnu, fjölbreytt úrval af veitingastöðum og gistiheimilum, blómlegri verslunarrekstur, meiri afþreyingu sem auk sjávarútvegsins hafa skapað mikilvægar tekjur inn í samfélagið. Það kemur nefnilega ótrúlega á óvart hversu margir starfa við ferðaþjónustu í Eyjum, það eru yfir 40 fyrirtæki rekin af eyjamönnum sem treysta á einhversskonar viðskipti við ferðamenn og ef bara eru teknir 7 veitingastaðir af þessum fyrirtækjum þá starfa þar yfir 150 starfsmenn yfir sumarið, þá eigum við eftir að telja öll hin. Svo þið sjáið að þetta er ekki lítið.

En til þess að geta horft fram á við verðum við að að vera óhrædd við breytingar. ÞÓR og TÝR urðu að ÍBV og þó svo að margir héldu að það myndi skapa heimsendi, þá hefur sú sameining orðið okkur til góðs. Grunnskólinn gerði breytingar og sameinaði unglingabekki öðru megin og yngri bekki hinu megin og fólk grét í örvæntingu við þessar breytingar. Í dag dytti engum í hug að breyta til baka. Allir kannast við hræðsluna og lætin við þær breytingar sem þjóðhátíðin okkar hefur tekið í gegnum tíðina sem hefur þó í flestum tilfellum bara verið gerð til að auka öryggi gesta. Og ekki mátti nýja skipið heita annað en Herjólfur, þó svo að koma skipsins boði nýja tíma. Nýtt nafn á nýju skipi hefði getað verið dauðafæri til að skapa nýja umgjörð og jákvæðara umtal og auðveldað sóknarleikinn í allri markaðassetningu. Nú, þegar á að nýta gamla skipið, erum við þá í staðinn með tvo Herjólfa eins fyndið og það nú hljómar. Ég held að engu hafi jafn mikið verið bölvað eins og Landeyjahöfn þó svo að hún hafi umbylt svo ótal mörgu til góðs fyrir okkur. Hún er ekki fullkomin, en hver er það og hver segir að við eigum að fá allt fullkomið upp í hendurnar.

Í þessu lífi getur enginn lofað því. Það eina sem fólk getur gert er að gera sitt besta, vinna með það sem er og leggja sitt af mörkum við að gera hlutina betri. Það auðveldasta í heimi er að vera sjálfskipaður sérfræðingur og gagnrýna. Það er ekkert mál að hafa allt á hornum sér og finna að því sem gert er án þess að koma með lausnir eða kynna sér málin til hlítar. Það eina sem þarf er lyklaborð og vont skap. Auðvitað þurfum við öll að geta tekið gagnrýni en mas og þras byggt á misskilningi og vanþekkingu er ekki bara leiðinleg heldur getur líka verið skaðleg.

Á meðan við pössum upp á okkar gildi og hefðir hér í Eyjum þurfum við samt líka að þora að horfa fram á veginn og taka næstu skref, annars er raunverulega hætta á að við sitjum eftir og eyjan okkar verður minnisvarði um blómlega byggð sem var, svo alvarlegt er það. Til þess að ferðaþjónustan nái að blómstra þurfum við öruggar samgöngur alveg eins og hin venjulegi eyjamaður sem þarf að komast á milli á einfaldan og öruggan hátt án hnökra og úrvals þjónustu. Það þarf að vera hægt að bóka sig í skipið fram í tímann og farþegar þurfa að vita hvort þeir eru að fara eða ekki.

Eins og staðan er núna er ferðatímabilið bara um þrír mánuðir af tólf. Hjá okkur er high season og svo no season. Þessu þarf að breyta. Ef ferðaþjónustan á að blómstra gengur ekki að fyrirtæki í ferðþjónustunni séu í tapi meirihlutann af vetrinum og þurfi svo að reyna að ná því upp á þremur mánuðum með blóði svita og tárum. Allur rekstur þafnast einhversskonar jafnvægis ef vel á að ganga. Með nýju skipi eru að koma nýir tímar. Við vitum ekki nákvæmlega hvernig þeir fara af stað en það eina sem er í boði fyrir okkur er að vera jákvæð, hjálpast að við að láta hlutina ganga, þrýsta á að þjónustan verði framúrskarandi og að hlutirnir verði unnir þannig að þeir séu með heimamenn og gesti okkar í algjörum forgangi.

Við verðum að vanda okkur í allri framsetningu því viðbrögð okkar heimamanna skipta miklu máli upp á ásýnd allra á stöðu mála. Komandi gestir og ferðaþjónustuaðilar sem senda til okkar ferðamenn fylgjast vel með. Ef við erum jákvæð og vinnum vel úr þeim aðstæðum sem koma upp fer þetta allt vel. Við verðum að átta okkur á því að hér er mikilvægt að hafa hugrekki til þess að horfa fram á við því það er mjög mikið í húfi. Það er enginn ferðamaður að fara að leggja sig í koju í gömlu skipi í þrjá tíma til Þorlákshafnar, við verðum að stíga næsta skref.

Ferðaþjónustan gæti svo auðveldlega orðið gulleggið í gullkörfunni okkar. Við höfum upp á svo ótrúlega margt að bjóða. Stórkostlega náttúrufegurð, vel þekkta gestrisni heimamanna sem er mjög mikilvægur þáttur, fjölbreytt söfn, stórkostlegan golfvöll, góða veitingastaði, fjölbreytta gistimöguleika, spennandi afþreyingu. Ég gæti endalaust talið áfram. Við eigum svo mikið inni.

Takk kæru Eyjamenn fyrir gestrisni ykkar, það hefur sýnt sig að það viðmót sem ferðamaðurinn fær á þeim stað er hann heimsækir er honum afar mikilvægt.

Verum jákvæð og gerum þetta saman.

Berglind Sigmarsdóttir

Formaður ferðamálasamtaka Vestmannaeyja

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
EF Fors 10 Tbl 2025
10. tbl. 2025

NÝBURAR

Aaro Orrason Vähätalo
30. ágúst 2025
Drengur
Turku Finnland
Laura Vähätalo og Orri Arnórsson

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Dýptarmæling

Ekki liggja fyrir nýjar mælingar 

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.