Fiskafli íslenskra skipa í júlí var 93.551 tonn sem er 27% meira en í júlí í fyrra. Botnfiskafli í mánuðinum var rúm 34 þúsund tonn og er það tæpum 5 þúsund tonnum meira en í júlí í fyrra. Þetta kemur fram í frétt á vef Hagstofunnar.
Af botnfisktegundum veiddist mest af þorski eða tæp 20 þúsund tonn sem er 16% aukning samanborið við júlí 2017. Rúm 5.000 tonn veiddust af ufsa, 4.611 tonn af karfa og 3.555 tonn af ýsu. Uppsjávarafli nam tæpum 54 þúsund tonnum sem er 37% meiri afli en í júlí 2017. Kolmunni og makríll voru uppistaðan í uppsjávaraflanum en um 25 þúsund tonn veiddust af hvorri tegund. Skel- og krabbadýraafli nam 1.912 tonnum samanborið við 1.626 tonn í júlí 2017.
Heildarafli á 12 mánaða tímabili frá ágúst 2017 til júlí 2018 var tæplega 1.286 þúsund tonn sem er 11% samdráttur miðað við sama tímabil ári fyrr.
Verðmæti afla í júlí metið á föstu verðlagi var 15% meira en í júlí 2017.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.