Vekja athygli íbúa suðurlands á umhverfismálum

Í kjölfar umræðunnar um Plastlaus September er gott að rifja upp og huga að því hvers vegna takmörkun plastnotkunar og endurvinnsla plasts er svo mikilvæg. Plast er unnið úr olíu og er mjög orkufrekt í framleiðslu. En hringrás plasts er einnig stórt vandamál því plast brotnar ekki niður í náttúrunni eins og við þekkjum t.d. með matvæli sem verða að jarðveg. Plast eyðist ekki sem þýðir að allt það plast sem framleitt hefur verið er enn í formi plasts um allan heim.

Plast sem er flokkað er hægt að endurvinna í annað plast en það plast sem ekki er endurunnið safnast upp á urðunarstöðum eða í náttúrunni. Þar brotnar plastið hægt niður í smærri einingar sem kallað er örplast og veldur skaða um ókomna tíð. Plast í jarðvegi og vatni dregur til sín ýmis mengurnar efni og hefur mikil áhrif á lífríkið. Sameinuðu þjóðirnar telja að magn plasts í hafinu verði meira en fiskar árið 2050 sem þýðir að plast á greiða leið í fæðukeðju mannsins og gæti endað á matardiskum okkar.

Á vefsíðunni umhverfissudurland.is má fræðast meira um skaðsemi plasts og lausnir sem allir geta nýtt sér. Öll sveitarfélög á Suðurlandi taka við plasti í flokkun.

 

Nýjustu fréttir

Þrjú framboð takast á um níu sæti í bæjarstjórn
Saman gerum við góðan bæ enn betri
Hundruð hafa þegar kosið utan kjörfundar í Eyjum
Líflegur lokasprettur í baráttunni – myndir
Þungavigtarfólk byggði upp Vestmannaeyjar
Áttatíu eldri borgarar í sælunni á Tenerife
Eyþór Harðarson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum
Teistan siglir til Landeyjahafnar
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.